Shake it like a saltshaker!

22.04.2009 10:31:00 / tje

Dimmisjón plan

jæja þá er ég svona semi komin með plan fyrir dimmisjonið.

24.apríl föstudagur
-Morgunpartý byrjar 7:30/8:00 hjá Andra að Þingaseli 8 breiðholtinu
-Leggjum af stað í strætó kl 09:45 í þristinum. Verðum þá komin upp í skóla 10:07 
-Dimmisjon hefst 10:30 við erum fyrst 
-búið ca.12 
-Gengið niður Laugaveginn og chillað á Ingólfstorgi
-pylsupartý í Hljómskálagarðinum 13:30 
-Lasertag kl. 14:30 Þekkir ekki einhver einhvern sem gæti verið til í að skutla ? 
-Frjáls tími til að vera vitlaus og drekka meira til 19:15
-Matur hefst í félagsheimilinu á nesinu kl.20:00 
Svooo bara parrrtý!!! 

Veiiiii!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2009 13:21:00 / tje

Dimmisjón undirbúningur

Jæja  niðurstaða af fundi áðan.
Hóparnir sem að heiðra kennarana:

Hópur 1. 
Íris Hrund
Hildur 
Hrefna 
Elínborg
Kristín Anna

Hópur 2
Steingerður
Svala
Kata
Hófý
Rakel

Hópur 3. 
Jóhanna
Gerða 
Eddi
Dabbi
Kristjana

Hópur 4. 
Íris S.
Gréta 
Ásdís
Eyrún
Andri

Hver hópur á að semja ljóð um sinn kennara. 

Við þurfum að velja tónlist fyrir dimmisjonið!! 

Hver hópur reddar gjöfum fyrir sinn kennara kostnaðarlimit á eftir að koma í ljós. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2009 17:42:51 / tje

Dimmisjon?

jójó, eru ekki örugglega allir búnir að borga staðfestingagjaldið?
Annars, gleðilega Páska allir og hafið það gott.
Passið að borða ekki of mikið af eggjum svo að við þurfum ekki að sauma nýjan búning á ykkur. nei bara djók.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2009 12:22:10 / tje

Tónleikar Kvintetts Lýðveldisins Íslands

Sæl öll sömul!
 
Mig langaði bara að benda ykkur á þessa tónleika sem ég er að syngja á ásamt fjórum félögum mínum úr Söngskólanum en saman myndum við Kvintett lýðveldisins Íslands.
 
Kveðja,
Andri Björn
 
Tónleikar Kvintetts Lýðveldisins Íslands
 
Kvintett Lýðveldisins Íslands mun halda tónleika í Aðventkirkjunni, Ingólfsstræti 19 - Reykjavík, sunnudaginn 15. mars nk. kl. 17.
Miðverð: 1000 kr. Miðasala við innganginn.

Dagskráin er fjölbreytt og spannar allt frá karlakóraslögurum til léttra dægurlaga. Þetta er því svo sannarlega skemmtun fyrir alla og sem enginn má láta framhjá sér fara.

Meðlimir kvintettsins eru: Andri Björn Róbertsson, Aron Axel Cortes, Magnús Hallur Jónsson, Oddur Arnþór Jónsson og Pétur Oddbergur Heimisson.

Kvintettinn tók til starfa sl. haust, þá að vísu sem sextett, en síðan hefur fækkað um einn, og er því skipaður fimm strákum. Þeir hafa komið reglulega fram síðan, á ýmsum samkomum, árshátíðum, fundum, tónleikum o.s.frv. Strákarnir héldu síðan tónleika á Café Rósenberg í janúar sl. þar sem yfir 200 manns hlýddu á. Tónleikarnir nú eru liður í undirbúningi fyrir tónleikaferð til Færeyja sem strákarnir leggja í undir lok mars. Kvintettinn sérhæfir sig í flutningi laga án undirleiks.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2009 23:06:07 / tje

Morgunpartý!!

Jæja þá er árshátíðin á næsta leiti! og fannst mér við hæfi að hafa þá morgunpartý. Það verður staðsett heima hjá mér á Melabraut 12 á seltjarnarnesi fyrir þá sem að ekki vita. Mæting svona um 10 leitið. Koma með bakkelsi eða eitthvað með sér  ásamt sjúklega góðu skapi og brosi milli beggja eyrna. 

Sjáumst hressalicious á morgun 

Kær kveðja 
Jóhanna :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2009 11:51:07 / tje

Kosningar fyrir árshátíð!! :D

Jæja elsku dúllurassarnir mínir þá er komið að hinum árlegu Tje bekkjar kosningum. Ég sendi tölvupós á ykkur með nánari upplýsingum endilega svara sem fyrst :P vúvú!! 



Kærlig hilsen
Jóhanna 

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2009 13:00:30 / tje

The Show Must Go On - Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík

Sæl öll!

Mig langaði til að benda ykkur á þessa sýningu sem ég er að syngja í. Frábær sýning fyrir fólk á öllum aldri ; )

The Show Must Go On! - Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík
 
Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík setur upp söngleikinn ,,The show must go on" í samstarfi við Íslensku Óperuna. Söguþráðurinn kemur úr smiðju nemendanna sjálfra en tónlistin er blanda þekktra söngleikjalaga og dægurlaga, bæði íslenskra og erlendra.
Alls taka 29 af nemendum Óperudeildar Söngskólans í Reykjavík þátt í sýningum ásamt hljóðfæraleikurum undir stjórn Kjartans Valdemarssonar.

Leikstjóri sýningarinnar og höfundur dansa er Sibylle Köll.

Sýningar verða á eftirfarandi tímum:
Föstudaginn 30. janúar kl. 20 Íslenska Óperan
Sunnudaginn 1. febrúar kl. 17 Íslenska Óperan

Miðasala:
Sala miða fer fram í Íslensku Óperunni. Miðasalan er opin frá 14-18 daglega.
Sími miðasölu er: 511 4200. Netfang: midasala@opera.is
Rafræn miðasala: http://midi.is/opera

Miðaverð:
Fullt verð: 2500 kr
Eldri borgarar/Vinafélag Óperunnar: 2250 kr
Ef þið þekkið einhvern í sýningunni er nóg að nefna nafn viðkomandi til að fá miðann á 2000 kr.
Sætin eru númeruð!

kv Andri Björn

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2009 20:26:01 / tje

Tónleikar

Sæl öll!

Ég er að syngja í kvintett á tónleikum á fimmtudagskvöldið 8. jan. kl. 20.30 á Rosenberg við Klapparstíg.

Meðlimir kvintettsins eru: Andri Björn Róbertsson, Aron Axel Cortes, Magnús Hallur Jónsson, Oddur Arnþór Jónsson og Pétur Oddbergur Heimisson.

Dagskráin samanstendur m.a. af ættjarðarkarlakórslögum, dægurlögum og popplögum í margradda a capella (á undirleiks) útsetningum.

Ég hvet því alla til að koma á afslappaða kvöldstund á Rosenberg nk fimmtudagskvöld, kl. 20.30 og njóta fallegrar tónlistar í þægilegu umhverfi.

Það er fríkeypis inn!!!!!!!!!

Kær kveðja,
Andri Björn


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 17:53:03 / tje

Jólakveðja

Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla með von um frið og gleði á nýju ári og þökk fyrir allt það liðna.

Jólakveðjur,
Andri Björn

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2008 16:59:11 / tje

STEED LORD - TRUTH SERUM

Hvet alla til að styrkja okkur og kaupa nýju plötuna okkar, Truth Serum.:haha:
Hún á að vera komin í verslanir eins og Hagkaup, Skífuna, Elko, 12 tónar, Smekkleysu o.fl. Svo er hún líka á www.tonlist.is

Tilvalin jólagjöf!!!:haha:

Takk fyrir önnina, 
Eddi.
http://img81.imageshack.us/img81/1521/truthserumcover450co9.jpg


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 19:36:04 / tje

Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju 2008

Sæl öll!

Ég vil bara benda ykkur á þessa tónleika hérna. Ég er að syngja í kórnum auk þess sem ég syng einsöng í einu lagi. Allar upplýsingar eru í textanum hér að neðan

kv Andri Björn 

Þrítugustu Jólasöngvar
Kórs Langholtskirkju

 Eivör Pálsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Bragi Bergþórsson syngja einsöng

 Þrítugustu Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða haldnir sem hér segir:
föstudaginn 19. desember kl. 23             Langholtskirkja
laugardaginn 20. desember kl. 20          Langholtskirkja

sunnudaginn 21.desember kl.20             Langholtskirkja

 Miðasala á www.midi.is
Til að fá 500 kr. afslátt þá þarf að slá inn lykilorðið: JOL2008

Auk Kórs Langholtskirkju syngur Gradualekór Langholtskirkju á tónleikunum. Kórarnir flytja jólalög hvor fyrir sig og einnig saman bæði hátíðleg og með léttri sveiflu. Áheyrendur taka virkan þátt í almennum söng.

Kórinn býður tónleikagestum upp á jólasúkkulaði og piparkökur í hléi og finnst mörgum gott að koma í Langholtskirkju og hlusta á falleg jólalög eftir búðarráp kvöldsins.

Einsöngvarar í ár verða Eivör Pálsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Bragi Bergþórsson en auk þeirra syngja kórfélagar einsöng. Hljóðfæraleikarar leika með á flautur (Hallfríður Ólafsdóttir og Anna Kristín Einarsdóttir), hörpu (Monika Abendroth), orgel (Lára Bryndís Eggertsdóttir), píanó (Kjartan Valdimarsson), kontrabassi (Gunnar Hrafnsson) og slagverk (Pétur Grétarsson). Stjórnandi er Jón Stefánsson.

Meira um tónleikana
Fyrstu jólasöngvarnir voru haldnir í Landakotskirkju 1978 en fyrstu tónleikarnir í Langholtskirkju voru haldnir í kirkjuskipinu 1980 áður en gler var komið í kirkjuna, í tíu stiga frosti og ganga í minningunni undir heitinu "vettlingatónleikarnir". Þá skapaðist sú hefð að gefa tónleikagestum jólasúkkulaði og piparkökur í hléi til að ylja sér.




» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 20:33:29 / tje

Einstaklings myndatökur fyrir árbókina

Jæææja krakks  .. heyriði .. við eigum víst að skila einstaklingsmyndum á mánudaginn og var þá verið að pæla í því að taka þær á fimmtudaginn þar sem okkar eigin Íris mun nota færni sína á myndavélina til þess að gera okkur soldið sæt .. munar ekki um það  *honk* *honk*  spaug en allavega .. allir að mæta sjúklega krúttlegir og sætir á fimmtudag :D yey!! 

Kær kveðja jóhanna :P

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 22:26:12 / tje

Jane Eyre

Sæl öll!

ég vil benda ykkur á eftirfarandi vefslóð: http://www.cliffsnotes.com/WileyCDA/LitNote/Jane-Eyre.id-23.html

þar er að finna ýmislegt efni um bókina og útdrætti úr bókinni og útdrætti úr hverjum kafla fyrir sig.

kv Andri

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2008 12:35:21 / Tinna

Póstur

KÍKIÐ Á PÓSTINN YKKAR NÚNA :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 14:33:43 / tje

Eplaball!!

Jæja þá er komið að því að fara að velja stað fyrir eplaballið. 
Ég er búin að tala við  Geysir sem er mjög kósý og fínn staður og þetta er svona uppkast af hugmynd.

Kjöt tvenna í aðalrétt sem sagt samblanda af kjúkling og lambakjöti ásamt meðlæti

og Eftirréttur á 3500 kr. án drykkja. Hvernig  hljómar þetta fyrir eyrum ykkar ástarhnoðrarnir mínir ? 




Kv. Jóhanna

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
10. febrúar 2012
Könnun
Árshátíðin málið ?
Árshátíð !! árshátíð! ááááárshátíð... ÁRS... hátíð !! AA!!
0 atkvæði

Nei blah dí blahh ekki enn ein árshátíðin
0 atkvæði

árshátíð hvað ? ég elska popp
0 atkvæði

ég vil njóta ásta með árshátíðinni!!
0 atkvæði

hmm ? ....
0 atkvæði

naaaeeeeehh.... ummmm ...
0 atkvæði

jaaaaeeeeemmmeeee ?
0 atkvæði

held nú ekki
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 0